7.6.2007 | 10:46
Árlegt mont
Skólaslit Kirkjubæjarskóla á Síðu voru í gær.
Þó skömm sé frá að segja, eftir að hafa átt börn í skólanum í 10 ár og verið í fræðslunefnd í 5 ár, þá voru þetta fyrstu skólaslitin sem ég mætti á. Varð nú að mæta núna þar sem að Mummi var að útskrifast og verð líka að mæta næstu tvö ár þar sem að Bragi útskrifast á næsta ári og Katrín árið þar á eftir.
Bragi var með 6,3 í einkunn og er það mjög svipað og hann hefur yfirleitt verið með. Hann þarf að passa sig svolítið og vera mjög duglegur næsta ár ef hann ætlar að ná öllum samræmdu prófunum á næsta ári. Hann fékk eina einkunn fyrir neðan 5 en hún var 4,5 svo hann verður bara að passa sig að gera ekki verr en núna
Katrín var með 7 í meðaleinkunn og er það örugglega það slappasta sem hún hefur verið með. Ekki er þó hægt að kvarta yfir slíkri meðaleinkunn
Mummi var með 6,8 í meðaleinkunn úr samræmdu prófunum og stóðst þau öll en hann tók öll sex prófin. Þrjú tók hann meira að segja kvalinn af tannrótarbólgu, upp dópaður og ósofinn, en náði samt.
Hann fékk 7,6 í meðaleinkunn úr skólaprófunum og er það með því betra sem hann hefur náð undan farin ár
Hann fékk verðlaun fyrir góðan árangur í samfélagsfræði og svo var hann sérstaklega verðlaunaður fyrir hvað hann hefur verið prúður, kurteis, duglegur og jákvæður þessi 10 ár sem hann hefur verið í skólanum. Oft hef ég verið montinn af börnunum mínum en aldrei eins held ég og þegar Mummi tók við síðar nefndu verðlaununum . Ekki skemmdi heldur að hann skuli hafa fengið þessi verðlaun á þeim degi sem afi hans heitinn og nafni hefði orðið áttræður hefði hann lifað.
Guðdís fékk 8,1 í meðaleinkunn og virðist hún ætla að byrja skólagönguna vel. Hún var að klára 2. bekk. Gott að hún skuli vera kominn með góðan grunn fyrir framhaldið, þá ætti það að vera léttara.
Begga var að klára 4. bekk og fékk 9,5 í meðaleinkunn. Hún tók sex próf og fékk þrjár 9ur og þrjár 10ur. Hún var samt nærri eins ósátt og Katrín þar sem að hún fékk 9 í stærðfræði og svo lágt hefur hún aldrei fengið í því fagi og fannst henni það nú bara vera falleinkunn .
Þó að börnin mín séu misánægð með niðurstöðurnar þá er hann faðir þeirra alveg í skýjunum yfir þeim og finnst þau öll hafa staðið sig með stakri prýði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Kristján Pétursson
-
Dofri Hermannsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Björn Heiðdal
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Anton Þór Harðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðmundur Ragnar Björnsson
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Júlíus Valsson
-
Guðmundur H. Bragason
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Tómas Þóroddsson
-
Ólafur fannberg
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Sigurður Egill Þorvaldsson
-
Benedikt Halldórsson
-
Aprílrós
-
Bwahahaha...
Athugasemdir
Gaman að heyra hvað börnunum gengur vel.Björt framtíð blasir við.Til hamingju.
Kristján Pétursson, 7.6.2007 kl. 20:22
Til hamingju með börnin.
Magnús Paul Korntop, 7.6.2007 kl. 22:06
Konan segir skamm skamm, að hafa ekki mætt á skólaslit fyrr
. Hún er aðstoðarskólastjóri í Grunnsk. Reyðarfjarðar. Ég fæ ekkert að komast upp með að mæta ekki. Til hamingju! 
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.6.2007 kl. 00:24
Til hamingju, þetta er frábært að heyra. Mummi er gott dæmi um að það borgar sig að tala og tala og tala og tala og spyrja og spyrja og spyrja og spyrja og spyrja og spyrja og spyrja... þegar maður er lítill
... og gott auðvitað að eiga nógu marga að sem nenna að skiptast á að svara, híhíhí 
Sé ykkur kannski um helgina.
Jóhanna Fríða Dalkvist, 9.6.2007 kl. 08:30
Ragnar:
Takk kærlega og til hamingju með þínar dætur einnig
Þrymur:
Takk kærlega
Kristján:
Takk kærlega, þau hafa grunninn að góðri framtíð virðist vera samkvæmt einkunnum svo er bara að sjá hvað þau gera úr honum
Magnús:
Takk kærlega
Gunnar:
. Takk fyrir hamingju óskirnar 
Skilaðu til frúarinnar að ég skammast mín mjög
Hanna:
Takk fyrir samveruna
Vala:

Takk kærlega. Gaman að sjá að þú kíkir hér við enn. Sakna enn þinna frábæru og mannbætandi blogga
Hafðu það sömuleiðis gott UNGA bloggvinkona
Ágúst Dalkvist, 10.6.2007 kl. 22:45
Ætlaði að kommenta hjá þér um daginn til að óska þér til hamingju með ungana en náði því ekki svo ég geri það núna...
Til hamingju með ungana!
Laufey Ólafsdóttir, 13.6.2007 kl. 02:54
Hjartanlega til hamingju með krakkana og svona umsagnir um framkomu og karakter segja oft meira um framhaldið í lífinu en nokkrar einkunnir.
Ég er svo mikil blúnda að mér líður alltaf eins og í jarðaför á skólaslitum, með tárin í augunum yfir gleði og stolti yfir mínum ungum og allra hinna líka. Það er svo gaman að sjá krakkana á skólaslitum. Þau eru eins og kýrnar á Hvanneyri sem ég sá um helgina fara í fysta skipti út í sumar. Síðan sér maður svo mikla breytinguna á þeim að hausti ..Já Dúddi minn fyrst þú ert nú farinn að mæta á skólaslitin hvet ég þig til að mæta á setninguna líka
Herdís Sigurjónsdóttir, 13.6.2007 kl. 11:57
Til hamingju með krakkana, ég segi eins og hún Herdís hérna fyrir ofan, ég fékk tár í augun og allt á miðvikudaginn þegar það voru skólaslit hjá litlu skottunni minni.... og hún er í fyrsta bekk !! Á eftir að skæla oft og mikið þar til hennar skólagöngu er búin hehe.
BIð að heilsa í sveitina,
knús til allra
Halla
Halla bjalla (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 23:03
Laufey:
Takk kærlega
Herdís:
Þarf nú að skoða þetta betur með skólasetninguna
Halla:
Sammála ykkur Herdísi, að skólaslitin eru tilfinninga þrungin stund og gaman er að sjá krakkana klára sínu merka áfanga, í hvaða bekk sem þau eru
Ágúst Dalkvist, 14.6.2007 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.