28.5.2007 | 22:59
Hard rock and water
Var að horfa á þátt í sjónvarpinu "klappir og vatn" sem rithöfundur frá Nýfundnalandi gerði og bar þar saman aðstæður þar og á Íslandi.
Að mínu áliti er þetta þáttur sem ætti að sýna öllum krökkum sem eru að útskrifast úr grunnskóla til að efla sjálfstæðisvitund þeirra.
Í þættinum kom fram að íbúar Nýfundnalands ákváðu árið 1949 að verða fylki í Kanada og veita þeim öll yfirráð yfir sínum auðlindum, fimm árum eftir að íslendingar ákváðu að verða sjálfstæð þjóð. Gríðarlegur munur er á þjóðunum í dag. Fjórðungur nýfundlendinga er atvinnulaus og þriðjungur ólæs meðan að hvoru tveggja þekkist varla hér á landi. Hún (rithöfundurinn) fór í verslanir á Nýfundnalandi og þurfti að leita lengi þar til hún fann vöru sem framleidd er þar í landi meðan að mjög stór hluti vara í verslunum hér á landi er framleiddur hér.
Auðlindir nýfundlendinga eru þó miklu meiri en okkar íslendinga. Fyrir utan fiskimiðin er þar hellingur af olíu og fleiru því sem ætti að geta komið þeim til góða og gert þá með ríkari þjóðum heims. Í stað þess er fiskurinn ofveiddur af öðrum þjóðum í þeirra lögsögu vegna þess að Kanadamenn eru daufir við að verja hann og tekjur af öðrum auðlindum renna til kanadíska ríkisins og skilar sér ekki nema að litlu leiti heim aftur. Margir viðmælendur þáttarins og rithöfundurinn sjálfur vildu meina að ástæðan fyrir þessum mun á Íslandi og Nýfundnalandi væri sú að á Íslandi veru ákvarðanirnar teknar af heimamönnum á meðan að á Nýfundnalandi voru ákvarðanirnar teknar af fólki víðs fjarri sem ekki þekkti til og hafði engra eða lítilla hagsmuna að gæta.
Maður fór ósjálfrátt að hugsa um það hvernig það yrði ef við myndum ganga í ESB og flytja með því ákvörðunarvald í mörgum mikilvægum málaflokkum út til Brussel. Myndi það koma okkur í svipaða stöðu og nýfundlendinga eru í dag?
Mikið er talað um það að þá fengjum við völd innan sambandsins þar sem að við fengjum nokkra þingmenn inn á Evrópuþingið. Nýfundlendingar fá 7 þingmenn í Kanada og þeir geta sagt okkur hvaða völd það veitir þeim en það er akkúrat engin. Svo fáir í stórum hópi gera ekki mikið fyrir þjóð sína þó þau leggi sig öll fram.
Athygli mína vakti að tekið var viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í þessum þætti og ekki nefndi hún þar að hún vildi skoða það að framselja hluta af okkar sjálfstæði til Brussel. Fannst eiginlega bara skondið að hún hafi verið valin í þennan þátt en ekki einhver t.d. frá VG eða D sem hafa lýst því yfir að ekki komi til greina annað en að halda öllu því sjálfstæði sem við höfum áunnið okkur með áratuga baráttu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.5.2007 kl. 12:58 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Jóhanna Fríða Dalkvist
- Laufey Ólafsdóttir
- Kristján Pétursson
- Dofri Hermannsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Björn Heiðdal
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Anton Þór Harðarson
- Bjarni Harðarson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Júlíus Valsson
- Guðmundur H. Bragason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Tómas Þóroddsson
- Ólafur fannberg
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Sigurður Egill Þorvaldsson
- Benedikt Halldórsson
- Aprílrós
- Bwahahaha...
Athugasemdir
Athyglisvert. Ég missti af þessum þætti
Gunnar Th. Gunnarsson, 29.5.2007 kl. 01:34
eeee... hvað meinarðu Ragnar??????
Fáránleg mistök hjá mér er held ég sé búinn að leiðrétta það allt saman. Takk fyrir ábendinguna
Ágúst Dalkvist, 30.5.2007 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.