Allt í góðu lagi?

Ekki getur verið mikið að í þjóðfélaginu okkar þegar mest er rætt um skoðanakannanir fyrir kosningar og hvort ung stúlka hafi átt að fá ríkisborgararétt eða ekki.

Ekki er þetta í fyrsta skiptið sem frjálslyndir skjóta sig í fótinn með vitlausu málefni. Auðvitað þarf að endurskoða þær reglur sem notaðar eru til að veita undanþágu til ríkisborgararéttar hér á landi. Maður ætti kannski að segja að það ætti að BÚA til einhverjar reglur og af því leitinu er þessi umræða góð og gild, en þegar Sigurjón Þórðarson kemur fram á ritvöllinn með slíkum ofsafengnum hætti sem raun ber vitni í þessu máli gerir það ekkert annað en að skemma fyrir honum sjálfum og minnka enn frekar möguleika hans að komast á þing.


mbl.is Bjarni segist ekki hafa neitað Sigurjóni um gögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

„Ekki getur verið mikið að í þjóðfélaginu okkar þegar mest er rætt um .... hvort ung stúlka hafi átt að fá ríkisborgararétt eða ekki.“

Hér er ekki bara rætt um hvort stúlkan hafi átt að fá ríkisborgararétt eða ekki, heldur um meingallaðar reglur og verklag í veitingu ríkisborgararéttar en þó mest af öllu um siðferði ráðamanna þjóðarinnar og hvort gróf spilling og sérhagsmunagæsla viðgangist í nefndum Alþingis. Ef svo er, ef jafnræðisregla stjórnarskrárinnar er ekki virt af þingmönnum, þá er mjög mikið að í þjóðfélaginu okkar. 

Bjarni Þór Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 13:16

2 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Ekki eru það mín orð að það séu bara frjálslyndir sem vekja máls á þessu. Eðlilegt að mikið sé um þetta rætt í þjóðfélaginu eins og Bjarni Þór nefnir þar sem að greinilegt er (eins og ég get um í bloggi mínu) að það eru engar vinnureglur sem alsherjarnefnd þarf að fara eftir í vinnu sinni þegar kemur að því að veita undanþágur við veitingu ríkisborgararéttar.

Hins vegar þegar þingmenn okkar láta eins og þetta sé aðalmálið sem þarf að eyða tíma í rétt fyrir kosningar og þeir virðast halda að með þessu sé helst að ná í atkvæði þá held ég að það sé ekki rétt val. Það er svo margt annað sem við þurfum meira á að halda að sé lagfært.

Ágúst Dalkvist, 2.5.2007 kl. 13:47

3 Smámynd: Þarfagreinir

Ágúst, hvaða stjórnarliði hefur viðurkennt að það þurfi að endurskoða reglurnar? Enginn, svo ég hafi heyrt. Þangað til ég heyri slíkt, helst frá ráðherra eða einhverjum álíka áhrifamiklum, þá mun ég persónulega halda áfram að hamra og hamra og hamra á þessu máli. Það á ekki að líðast að það sé hægt að skýla sér endalaust bakvið meingallað kerfi, og viðurkenna síðan ekki einu sinni að það sé gallað. Það finnst mér vera aðalmálið hér.

Þarfagreinir, 2.5.2007 kl. 14:27

4 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Stjórnarliðar geta ekki með nokkru móti skýlt sér á bakvið meingallað kerfi. Kerfið er ekki svo gallað að það sé ekki hægt að vinna eftir því ef fólk vill en hins vegar býður það upp á spillingu. Þetta er enn eitt dæmið um afsökun og ástæðu eins og ég tala um í síðasta bloggi mínu á undan þessu.

Fagna því "Þarfagreinir" að þú munir hamra á þessu máli þar til að reglurnar eru lagaðar, eða búnar til, þar sem mér sýnist að engar séu til nú. En þeir sem eru í atkvæðaleit ráðlegg ég að leita í önnur mál sem skipta kjósendur meiru máli.

Ágúst Dalkvist, 2.5.2007 kl. 14:47

5 Smámynd: Björn Heiðdal

Íslendingar hafa það bara of gott.  Smá hungur og drepsóttir ættu að hressa upp á umræðuna.

Björn Heiðdal, 5.5.2007 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Dúddi bóndi

Ágúst Dalkvist
Ágúst Dalkvist

Hin hliðin :) Vonandi finnið þið eitthvað sem þið getið verið ósammála mér um ;)

 

Spurt er

Ætlar þú að fyrirgefa, taka ábyrgð á eigin gerðum og standa með öðrum íslendingum að vinna sig út úr kreppunni?
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband