4.4.2007 | 16:48
Virðingarvert eða fíflagangur
Samfylkingarfólk ber sér mjög á brjóst þessa dagana fyrir að hafa staðið fyrir kosningu um deiliskipulag í Hafnarfirði. Mörgum þykir þessi kosning hafa verið fíflagangur og aðeins tilkomin vegna þess að Samfylkingin getur ekki tekið afstöðu til umdeildra mála.
Mikil umræða um þetta mál hefur verið hér á blogginu og vill Samfylkingarfólk yfirleitt meina í þeirri umræðu að sjálfstæðisflokkurinn sé á móti íbúalýðræði.
Ég þori ekki að tala fyrir sjálfstæðisflokkinn en get þó sagt fyrir mig persónulega að það er ekki svo. Hef sjálfur verið talsmaður aukins lýðræðis. Við verðum þó að gæta okkur á að velja þau mál af kostgæfni þegar kemur að íbúakosningum í sveitarfélögum og vanda tímasetningu kosninganna en það hvort tveggja klikkaði algjörlega hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði.
Margir munu lesa þetta hjá mér með þeim augum að ég er flokksbundinn sjálfstæðismaður, og er það í góðu lagi, en ég vil taka fram að ég lít ekki á pólitík sem trúarbrögð og vil ekki meina að allt sé gott sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir og allt sé vont sem aðrir standa fyrir og hef hingað til haft mikið ályt á Lúðvíki Geirssyni, en það minnkaði reyndar eftir þetta ævintýri Hafnfirðinga.
Átta ár var Alcan búin að vera að undirbúa stækkun álversins í Straumsvík og aldrei var þeim gefið annað í skin en að þau hefðu blessun bæjarstjórnarinnar til að byggja upp í Hafnarfirði. Eftir þessi átta ár, mikla vinnu og mikið fjármagn var efnt til íbúakosninga og málið blásið af.
Þessi vinnubrögð hljóta að verða til þess að auka óöryggi í atvinnulífinu. Það fólk sem hefur áhuga að byggja upp atvinnulífið í Hafnarfirði getur ekki treyst því að Samfylkingin standi við öll loforð þegar búið verður að leggja mikla vinnu og mikið fjármagn í undirbúninginn og hljóta að leita annað.
Ekki getur heldur talist gott þegar það er búið að kljúfa heilt sveitarfélag í herðar niður. Hafnfirðingar skiptust í tvær nákvæmlega stórar fylkingar og mun það taka einhvern tíma fyrir þau sár að gróa. Ekki þykir mér heldur gáfulegt að etja Hafnfirðingum beinlínis gegn einu helsta fyrirtæki þeirra, sem hefur helst haldið uppi atvinnulífinu þar í bæ.
Ef við viljum íbúlýðræði, sem ég held að við flest viljum, þá hefði verið eðlilegast að leyfa stækkun álversins í Straumsvík þar sem að undirbúningsferlið var komið það langt að ekki var siðferðislega hægt að bakka með það. Síðan hefði átt að fara með það í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort við kærðum okkur um frekari stóriðju í landinu áður en að fleiri álver verði komin þetta langt í undirbúningi. En það er endalaust hægt að segja að "svona hefði þetta átt að vera" en nú er að horfa fram á veginn, virða ákvörðun hafnfirðinga og reyna að gera sem best úr hlutunum úr því sem komið er.
Annars er það alveg öruggt að þetta verður eitt af þeim málum sem kosið verður um í þingkosningunum í vor og mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn til að viðhalda áframhaldandi atvinnuuppbyggingu í landinu.
Þess má nú samt geta, þar sem að ég hef verið að skamma Lúðvík svolítið í bloggum og athugasemdum við blogg annara, að ég sat aðalfund Skógræktarfélags Íslands í fyrra. Á laugardagskvöldi settust fundarmenn saman yfir mikilli matarveislu og Lúðvík Geirsson var veislustjóri og var alveg frábær í því hlutverki
En að öðru. Setti netfangið mitt í höfundarupplýsingar þannig að ef þið viljið hafa samband, þá er það velkomið.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Spurt er
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Jóhanna Fríða Dalkvist
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Kristján Pétursson
-
Dofri Hermannsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Björn Heiðdal
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Anton Þór Harðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Guðmundur Ragnar Björnsson
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Júlíus Valsson
-
Guðmundur H. Bragason
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Tómas Þóroddsson
-
Ólafur fannberg
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Sigurður Egill Þorvaldsson
-
Benedikt Halldórsson
-
Aprílrós
-
Bwahahaha...
Athugasemdir
Ég ætla að ráða þig sem ritara minn...stundum allavega...er ekki alveg alltaf sammála þér...stundum sjaldan...en er sammála núna
Jóhanna Fríða Dalkvist, 4.4.2007 kl. 17:09
Kannski ekki fíflagangur, meira klaufagangur.
HP Foss, 4.4.2007 kl. 19:54
Alveg magnað að lesa þetta. Það er bara alveg eins og þú hafir ekki byrjað að fylgjast með fréttum fyrr en um síðustu áramót. Ég legg til að svona til tilbreytingar takir þú í smá stund bláu gleraugun af nefinu, setjir upp önnur ólituð í staðinn og reynir að horfa á hlutlaust á málin og setja þig örlítið betur inn í þau áður en þú birtir sleggjudóma eins og þessa sem eru þar að auki fullir af rangfærslum. Ég ætla að byrja því að vera sammála þér um það að kosningin hefði að sjálfsögðu átt að fara fram miklu fyrr. Það hefði verið betra fyrir alla aðila. En þá er það ruglið. Þú lætur eins og það hafi bara verið ákveðið núna nýlega að kjósa um þetta. Það er rangt. Það hefur legið fyrir í langan tíma, reyndar mörg ár að þetta mál ætti að fara í íbúakosningu. Alcan hefur allan tímann verið fullkunnugt um það ekki síður en mér og fleirum. Alcan hefur á þessum tíma unnið að undirbúningi stækkunarinnar, keypt land og fleira og hefur þar af leiðandi tekið ákveðna áhættu eins og flest fyrirtæki þurfa að gera í sínum rekstri. Í þessu tilfelli féll gæfan ekki þeirra megin og þá finnst mér óskaplega aumt að rjúka í einhverskonar fýlu og segja að meirihluti Hafnfirðinga sé þröngsýnn (þin orð) og fleira í þeim dúr. Ég veit ekki til þess að það hafi verið búið að lofa Alcan einu né neinu í þessum efnum en ég geri ráð fyrir að bæjarstjórn hafi tekið vel í erindi Alcan manna um stækkun eins og fleiri erindi sem berast inn á borð til þeirra. Alcan vissi að að þetta gat fallið þeirra megin og öfugt. Ég skil heldur ekki þá röksemd að leyfi hefði átt stækkunina af því að undirbúningsferlið var komið svo langt. Það er nú bara einu sinni þannig að til þess að byggja og breyta þá þarf að hafa ákveðin leyfi og þú ferð ekkert af stað fyrr en þú ert komin með öll leyfin. Ef mig langar td. að stækka húsið mitt þá þarf ég að fara með það í grendarkynningu og nágrannarnir geta einfaldlega neitað mér um þær breytingar sem ég ætla að gera. Það má kannski bara líkja þessari kosningu við risastóra grendarkynningu enda framkvæmdin risavaxin. Þú segir að búið sé að kljúfa sveitarfélagið í herðar niður. Ég á heima í Hafnarfirði og hérna er lífið bara nákvæmlega eins og það var fyrir þessar kosningar nema hvað núna eru hættar að streyma inn um bréfalúguna hjá okkur fallegar myndir af álveri þar sem strompana vantar. Fólkið hér er sem betur fer bara eins og annað fólk að það sættir sig við niðurstöður kosninga. Reyndar voru nú mestu lætin í fjölmiðlunum eins og svo oft áður. Þú segir líka að Alcan haldi upp atvinnulífinu í Hafnarfirði. Ég legg til að þú farir nú að kíkja í Fjörðinn. Vissulega vinna margir í Álverinu en ég er ekki viss um að það vinni mikið færri td. hjá Actavis og þar er ekkert verið að rífast um mengun og þess háttar. Það hefur líka sjálfsagt spilað eitthvað inn í að Alcan hefur ekki setið á neinum sérstökum friðarstóli í starfsmannamálum síðustu misseri og ég giska á að flestir þeir sem tengjast þeim starfsmönnum sem voru komnir nálægt starfslokum og hafa verið reknir án ástæðu hafi ekki verið Alcan neitt sérstaklega hliðhollir í atkvæðagreiðslunni. Kannski munurinn hafi legið þar, hver veit? Mér finnst bara bæjarstjórn Hafnafjarðar eiga hrós skilið fyrir að vera brautryðjendur í því að ég og fleiri höfum eitthvað um það að segja hvernig við viljum að bærinn okkar komi til með að þróast og vona að fleiri bæjarfélög beri gæfu til þess að gera slíkt hið sama. Kannski er bara með álverið í Straumsvík eins og með áburðarverksmiðjuna að tími þess er að renna út. Fólk metur einfaldlega heilsu sína og notalegt umhverfi meira en allt annað. Ég geri það alla vega.
kv
Valdi
óflokksbundin aðfluttur Hafnfirðingur
Valdi Kaldi, 5.4.2007 kl. 00:49
Addi:
Ætla að fá að svara þér lið fyrir lið
1. Mörgum þykir þessi kosning hafa verið fíflagangur og aðeins tilkomin vegna þess að Samfylkingin getur ekki tekið afstöðu til umdeildra mála.' Held að þú hafir gleymt að lesa fyrsta orðið í þessari setningu "Mörgum". Ef þú skoðar þá umræðu sem hefur farið fram hér á blogginu þá sérðu að þessi fullyrðing er rétt.
2. Slæma við þessa kostningu var hversu jafnar fylkingarnar voru sem voru með og á móti. Engin afgerandi niðurstaða fékkst sem var það allra versta sem gat gerst. Litlar líkur að slíkt gerist í þingkosningum í Hafnarfirði þar sem Samfylkingin er langt stærst
Veit ekki hvort þú hefur tekið eftir því en Lúðvík Geirsson hefur verið að benda á það að það var ekki verið að kjósa um stækkun heldur deiliskipulag, hugsanlegt er að álverið geti stækkað innan núverandi skipulags.
Sumir læra af reynslu annara. Hafnarfjörður verður ekki eins aðlaðandi eftir þetta fyrir stærri fyrirtæki. Þau leika sér ekki að hætta miklu fjármagni til að koma upp starfssemi þar sem Samfylkingin er við völd þegar möguleiki er að semja við traustari stjórnvöld.
3. Ástæðan fyrir því að ég kýs Sjálfstæðisflokkinn er sú að ég er oftast sammála forystu hans og þess vegna þó að ég sé sammála honum í þessu máli bendir ekkert til að ég líti á pólitík sem trúmál. Það má þó lesa út úr þessari fullyrðingu þinni sem þú skrifar í lið 3 að pólitík sé þér sem trúarbrögð þar sem margur heldur mig sig
Þar af leiðandi standa allar mínar fullyrðingar áfram.
Vona að ég hafi svarað öllu, annars heldur þú bara áfram að skamma mig
Valdi:
Við erum greinilega sammála um aðalatriðið að mínu mati, kosningin hefði þurft að fara fram mikið fyrr í ferlinu.
Ég segi í bloggi mínu að álverið HAFI haldið uppi atvinnulífi í Hafnarfirði. Það er kannski ekki nógu skýrt hjá mér. Það eru ekki svo mörg ár síðan að álverið var langstærsti atvinnurekandinn í bænum en sem betur fer hefur síðan byggst mikið upp. Þó það gefi ekki þeim sem reka álverið rétt til að gera það um ókomna framtíð þá eru þeir örugglega búnir að vinna sér inn rétt á að fá siðferðislega rétta afgreiðslu.
Þið hafið kannski ekki tekið eftir því að ég segi líka að það beri að fara eftir niðurstöðum þessara kosninga en mörg voru klúðrin í kryngum þetta mál og ber okkur að læra af þeim en ekki bara loka augunum fyrir mistökunum.
Ég var hlynntur því að álverið fengi að stækka en mér þykir ekkert sárt að niðurstaða kosninganna sé á hinn veginn. Það verða þá bara frekar byggð álver út á landi þar sem meiri þörf er á þeim fyrir atvinnulífið. Það sem ég gagnrýni er framkvæmd kosninganna, að henni stóð Samfylkingin fyrst og fremst og hlýtur þá að teljast eðlilegt að ég gagnrýni hana fyrir vikið og það sem meira er að svo virðist að þeir sem vilja líta á málið hlutlaust eru sammála mér
Ágúst Dalkvist, 5.4.2007 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.