Friður sé með yður

Mikið var leiðinlegt að heyra á mótmælunum í gær þegar verið var að hvetja til valdaráns. Ég hélt að íslendingar væru friðarsinnar og hefðu þolinmæði til að leita sátta.

En hins vegar get ég vel skilið að fólk vilji breytingar og nú held ég að það sé kominn tími til að stjórnvöld komi til móts við fólkið sem á erfitt með að hemja reiði sína.

Þess vegna krefst ég þess einfaldlega að stjórnvöld og mótmælendur leiti leiða til að ná sáttum strax í þessari viku.

Það er ljóst að það kemur að því að taka þarf til í fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum og held ég að rétti tíminn væri til þess núna í vikunni.

Mjög sterkt held ég líka að það myndi virka að uppstokkun yrði í ríkisstjórninni. Formenn stjórnarflokkanna ættu að stíga af sínum stalli, fjármálaráðherra og jafnvel viðskiptaráðherra. Með því væru flokkarnir að taka pólitíska ábyrgð.

Ekki væri heldur vitlaust að ákveða tíma til kosninga. Vil þó að það sé lengra í þær en að þær verði í vetur eða vor. Því að ég vil að nýjir flokkar hafi tíma til að koma fram á sjónarsviðið með nýju fólki.

Ef Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn ætla báðir að setja inngöngu í ESB á stefnuskrá hjá sér þá þurfum við flokk á hægri vængnum sem er á móti ESB aðild svo að hægri menn þurfi nú ekki að fara að kjósa VG LoL. Ef flokka kerfið á að virka þá verða að vera flokkar sem snúast um málefni og þeir verða að vera það fjölbreyttir að sem flestir geti fundið eitthvað til að kjósa Smile

Ég vil því hvetja stjórnvöld til að hafa hraðar hendur og sýna almennilegan lit núna strax í þessari viku. Það er ljóst að þolinmæði fólks er á enda og það er skylda stjórnvalda að halda frið í landinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða væl er þetta að þeir sem vilja ekki ESB verði að fá nýjan flokk á hægri hliðinni.... bara allir að kjósa VG og ekkert röfl :P hehe

Nóní (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Dúddi bóndi

Ágúst Dalkvist
Ágúst Dalkvist

Hin hliðin :) Vonandi finnið þið eitthvað sem þið getið verið ósammála mér um ;)

 

Spurt er

Ætlar þú að fyrirgefa, taka ábyrgð á eigin gerðum og standa með öðrum íslendingum að vinna sig út úr kreppunni?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband